Draumasmiðjan

The DreamWorkshop ...

... where dreams come true.

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
The DreamWorkshop

Stubbar

There are no translations available.

Von er á nýjum þáttum af Stubbunum á söludiskum. Fyrsti þátturinn heitir Stubbar í feluleik og er gert ráð fyrir að hann komi í verslanir í haust

 

Unglingastarf í undirbúningi

There are no translations available.

Draumasmiðjan undirbýr nú unglingastarf innan döff leikhússins þar sem boðið verður upp á leiklistarnámskeið og unnið að sýningum. Þegar hafa nokkrir sýnt þessu starfi áhuga en ennþá er pláss fyrir fleiri. Unglingastarfið er ætlað bæði döff og coda- en það er algjört skilyrði að tala táknmál.

Þeir sem hafa áhuga að bætast við hópinn hafi samband við Elsu á netfangið elsa (at merkið) draumasmidjan.is

 

 

Fréttabréf Draumasmiðjunnar

There are no translations available.

Ágúst 2009

Kæru Vinir Draumasmiðjunnar

Nú er ágúst hálfnaður og Draumasmiðjan er að vakna eftir sumarfríið.  Okkar fyrsta verk er að koma á fót svo kölluðum Vinir Draumasmiðjunnar, sem er póstlisti fyrir þá sem hafa áhuga á að fá upplýsingar með fréttabréfi í tölvupósti um hvað Draumasmiðjan er að gera og hvað er framundan hjá okkur. Þetta fyrsta fréttbréf er sent út á alla skráða hjá Félagi heyrnarlausra – þannig að ef þú hefur áhuga á að vera „Vinur Draumamiðjunnar“ þá skaltu senda okkur póst til baka (svara / reply  þessu bréfi) og þá bætum við netfanginu þínu á póstlistann okkar. Ef þú sendir okkur ekki til baka þá verður þú ekki á listanum og færð ekki upplýsingar.

Draumum 2009 er nú lokið og tókst hátíðin með eindæmum vel. Sýningar voru vel sóttar og voru áhorfendur almennt afar ánægðir með sýningarnar og hátíðina alla sem slíka. Draumasmiðjan þakkar öllum þeim sem að hátíðinni komu, samstarfsaðilum, styrktaraðilum og sjálfboðaliðum –  því án ykkar hefði þetta ekki verið hægt!

Hafinn er undirbúningur að næstu hátíð sem ráðgert er að hafa árið 2011.  Allar hugmyndir að dagskrá eru vel þegnar á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it . Sjálfboðaliðar eru einnig vel þegnir á hvaða stigi verkefnisins sem er og geta þeir sem hafa áhuga að koma að verkefninu haft samband við Draumasmiðjuna á netfanginu This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Eitt stærsta verkefni Draumasmiðjunnar fyrir næsta ár er að fara á fund Katrínar menntamálaráðherra og kynna henni þá hugmynd að Draumasmiðjan fái föst fjárlög til að geta starfað í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, hefur lýst því yfir að hún vilji gjarnan hafa Draumasmiðjuna með 1 sýningu á ári hjá Þjóðleikhúsinu. Draumasmiðjan er búin að sækja um viðtal hjá ráðherra en sennilega kemur ekki að okkur fyrr en í október.  

Draumasmiðjan hefur ákveðið að hefja unglingastarf fyrir döff innan leikhússins (aldur 13 – 18 ára). Unglingastarfið fæli meðal annars í sér leiklistarþjálfun og fræðslu um leikhúsmenningu. Í athugun er að koma á erlendu samstarfi í framtíðinni sem fæli í sér ferðalög erlendis. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it – coda börn velkomin líka en táknmálskunnátta skilyrði.

Kær kveðja,
Ykkar vinur

DRAUMASMIÐJAN
 

Draumar 2009

There are no translations available.

Draumar 2009 er alþjóðleg döff leiklistarhátíð á Íslandi, sem haldin verður vikuna 24. til 31. maí 2009. Hátíðin er skipulögð af Draumasmiðjunni í samstarfi við Þjóðleikhúsið og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Aðalstyrktaraðilar hátíðarinnar eru Norden kulturfond, fjárlaganefnd Alþingis og Reykjavíkurborg.
Leiklistarhátíðin Draumar er nú haldin í annað sinn en hátíðin voru fyrst haldin árið 2006 á Akureyri í tengslum við Norrænni menningarhátíð heyrnarlausra. Aðalmarkmið döff leiklistarhátíðarinnar er að bjóða heyrnarlausum Íslendingum upp á úrval alþjóðlegra leiksýninga sem gerðar eru með þarfir þeirra í huga og skara fram úr hvað gæði og fagmennsku varðar.
Einnig er markmiðið að auka tengsl listafólks sem vinnur við döff leikhús og kynna sérstaklega Draumasmiðjuna, eina döff leikhúsið á Íslandi, á alþjóðlegum vettvangi. Auk þess standa vonir til þess að hátíðin auki áhuga og skilning almennings á menningu heyrnarlausra og þá sérstaklega á döff leikhúsi.

Dagskrá hátíðarinnar er sem hér segir:

Sunnudagur 24.05.09

16:00 Opnunarhátíð DRAUMA 2009, í Þjóðminjasafni Íslands.
18:00 Fyrirlestur: Monique Holt  ræðir um notkun táknmáls á sviði. Fyrirlesturinn fer fram í Háskóla Íslands, stofu 101 í Odda – Flutt á bandarísku táknmáli og þýtt á ísenskt táknmál og raddaða ensku. Aðgangur ókeypis og opinn öllum.
20:00Fyrirlestur: Marianne Aaro ræðir um notkun táknmáls í óperuflutning, í Háskóla Íslands, stofu 101 í Odda – Flutt á finnsku táknmáli og þýtt yfir á íslenskt táknmál, raddaða ensku og bandarískt táknmál. Aðgangur ókeypis og opinn öllum

Mánudagur 25.05.09

10:00 - 16:00Námskeið: Lars Henning leiðir leiklistarnámskeið í líkamstjáningu í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu – skráning er hjá Draumasmiðjunni en kennt er á ensku og þýtt yfir á íslenskt táknmál og bandarískt táknmál 
20:00Leiksýning: Fyrsta táknmálsópera heims, The Hunt of King Charles (Teatteri Totti, Finnland) í Kassanum, Þjóðleikhúsinu – miðasala á midi.is. 

Þriðjudagur 26.05.09

10:00 - 16:00Námskeið: Lars Henning leiðir námskeið á í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu 
20:00Leiksýning: Nýtt íslenskt gamanverk á dramatískum nótum, Lostin (Draumasmiðjan, Ísland/Tékkland) í Kassanum, Þjóðleikhúsinu – miðasala á midi.is

Miðvikudagur 27.05.09

 Skoðunarferð leikhópanna um Suðurlands undirlendið 

Fimmtudagur 28.05.09

10:00 - 16:00Námskeið: Lars Otterstedt heldur leiklistarnámskeið í túlkun leiktexta Lars Norens,í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu. Kennt er á táknmáli eingöngu – skráning hjá Draumasmiðjunni
20:00Leiksýning: Gamanverkið Mistero Buffo (Ramesh Meyyappan, England/Singapore) íKassanum, Þjóðleikhúsinu – miðasala á midi.is

Föstudagur 29.05.09

10:00 - 16:00Námskeið: Lars Otterstedt heldur námskeið í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu
20:00Leiksýning: Lostin (Draumasmiðjan, Ísland/Tékkland) í Kassanum, Þjóðleikhúsinu – miðasala á midi.is

Laugardagur 30.05.09

20:00Leiksýning: Frá Gay Pride til Drauma, The Dream boys (Tyst teater, Svíþjóð) í Kassanum, Þjóðleikhúsinu

Sunnudagur 31.05.09

14:00Hátíðinni DRAUMUM 2009 slitið.

 

New acting course

A new acting course will start on the 4th of January at the Deaf Club at Suðurlandsbraut, twice a week for four weeks, 8 times in total.  The course will be on sundays and tuesdays, a precise timetable will be published soon.  The instructor will be T. Marianne Aro who directed the Finnish Sign Opera who many of you know.  That Opera received a lot of publicity when it was premiered in Finland last spring and especially here in Iceland since Kolbrún Völkudóttir plays the lead part and we all know her.

The course is free and you can sign up with Elsa by sending an email to This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it or by sending a text message to 8984429.  There is no age limit and everyone is welcome.  Those who participate in the course will show the results on the last night of the course at the end of January.

We in the Dream Workshop would also like to receive play scripts for a play script competition.  The deadline is the 1st of February 2009 and there are good prices for the best play script.  T. Marianne Aro will then direct a play from the winning script.

Those interested in acting in the new play are encouraged to attend to the acting course and submit their name for the new actor group to Elsa by sending an email to This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it .  T. Marianne Aro will then choose actors from those who signed up who fit the play.

Please don't hesitate to contact us if you have any questions or want to participate.

 

The Dream Workshop receives a grant from the Nordic Culture Fund.

Norden logoThe Dream Workshop has received an grant from the Nordic Culture Fund to host the internation deaf acting festival Dreams 2009.  The acting festival Dreams is being hosted for the second time, the first being in AKureyri in 2006 in connection with the deaf culture festival.  This time the festival will be in Kassinn in the National Theater from the 24th to the 31st of May 2009.  Numerous participation applications have already been received but the application deadline is the 31st of December 2008.  The final list of participants will then be announced in mid January 2009.  Related to the festival there will be various workshops for the participants and lectures on the use of sign language in stage art which will be open to the public.

The grant is in Danish kronas, but since the Icelandic krona is quite unstable these days, the final amount isn't quite certain at this point.

 
  • «
  •  Start 
  •  Prev 
  •  1 
  •  2 
  •  3 
  •  4 
  •  5 
  •  6 
  •  Next 
  •  End 
  • »


Page 1 of 6